Góðan daginn!

Ég heiti Soffía en kalla mig ICE eða Sophie.

Ég var að gefa út mína fyrstu plötu INTERRAIL á dögunum.

Þetta er þemaplata á fjórum tungumálum en hún er byggð upp eins og um sé að ræða Interrail ferðalag um Evrópu. Tónlistin sem ég geri má lýsa sem hugsandi hiphop yfir jazzkennda takta með r&b ívafi.

Það má þess geta að þessi plata er fyrsta einfaraplata kvenrappara á Íslandi.

Platan fæst í 12 Tónum, Smekkleysu, Smash og Exodus og verður fáanleg á fleiri stöðum í náinni framtíð.

Frekari upplýsingar er hægt að nálgast á http://myspace.com/sophieyo eða gegnum vefpóst sophieakaice@gmail.com

Endilega nælið ykkur í eintak og hafið það gott um helgina :)

kær kveðja, ICE!