byrjaður á nýjum texta.. u.þ.b hálfnaður á eftir að finna chorusinn og klára seinna versið… En allavega deila með ykkur því sem komið er endilega commenta p'z…

Segist harður og líkir þér við krossfara
þú gætir aldrei borið krossinn upp á golgata
spilling og fíkniefnadýrkun i botni eins og sódóma
um hugann flýgur einn og enginn samferða
útúr-fucked undir áhrifum vímuefnana
stuð, sveppir og LSD sem veita þér vellíðan
áhrifin logna út og hvað tekur við síðan?
niðurtúr og þunglyndis baráttan
enginn friður, ert súr og kynnist vanlíðan
á versta stigi og villt flýja þaðan
hugsun að bresta því það er ekki lengur gaman
reynir að útskýra það allt
en þú getur varla talað
í leit af orðum en þú bara stamar/
ert eins og ósjálfbjarga krakki
máttlaus og í leit af næsta skammti
fórst í feluleik við kölska en hann fann þig
fannst enga útgönguleið svo þú bara starðir
skelkaður og allir vinirnir farnir
hann gerði þér tilboð svo þú samdir/
seldir sálina fyrir eitrið sem er ansi lítið
sást efnin og tókst ákvörðun í flýti
eina hugsunin, fokk ég geri allt fyrir spíttið
hélst þú hefðir það slæmt? nú fyrst upplifiru helvítið
áhrifin hurfu og allt virtist svo skrýtið
en þú varst tilbúinn að gera hvað sem er fyrir skítinn
óviðbjargandi eins menn sem eru H.I.V sýktir/



Er týndur og virðist hafa villst af leið
ráðavilltur í baráttu við mikla syndaneyð
upplifi, blóð, tár, svita og hungursneið
uppgefinn og ég finn ekki leiðina heim
eins og blindur maður sé bara ekki neitt
vantar blindrastafinn annars get eg engu breytt/
er davíð gegn golíat í þessu tilfelli
virðist vonlítið og gott sem tapað spil
mæti mínum örlögum en vantar vopnið mitt
hvar er slangan mín og allir steinarnir?
hans her mikið stærri og miklu reyndari
en ég heyrði drottinn hvísla “en þið eruð trúaðir!”
svo við lögðumst á bæn og við höfðum vinninginn/
ég réðst til atlögu og hjó af öllu afli
og djöflaveldið virtist fallið
laus við öll efni, því ég hlustaði kallið
ákvað að trúa og stefndi kölska-loks-af stalli
frelsaðist og varð loks af manni/
“Only God Can Judge Me - Tupac Shakur”