Kominn með ca. eitt vers að nýju lagi, svo kom bara ritstífla þannig eg setti það á bið :D bara setja þetta inn sjá hvort það sé á réttri leið… þannig endilega commenta =)

Taktu þig taki

(Biggi)
Það er synd að fólki finnist töff að reykja stuð
eilífðar einsemd og tilbiður hass sem sinn eina guð
rífðu þig upp af rassgatinu! þú ert hermaður
sem villtist af leið, slétt sama um allt í hefndarhug/
ráfar um götunar í leit af næsta skammti
hvað varð um drauminn, spitta rímur með dope takti
varst efnilegur, en svo kom afganinn svarti
til sögunnar og þú misstir sjónar af rappi/
hugsun ryðguð og rökhugsun farin
ofbeldi og innbrot virtust rétta svarið
skuldir, barsmíðar, skilorð og lífið farið
þunglyndi, allt slökkt og þá er allt upp talið
fjölskyldan þjáðist og snéri í þig baki
uppgjöf er ekki möguleiki taktu þig taki
vertu sterkur, og snúðu við þínu blaði
enginn verður óbarinn biskup í sínu héraði/
taktu bókina góðu og lestu stíft
þar færðu svar við öllum spurningum frítt
vísar þér rétta leið og þú getur byrjað uppá nýtt
snúið baki við öllu og eignast eilíft líf
fylgdu jesú alla leið,og ég ábyrgist sjón á ný
týndur sauður getur ratað heim ég lofa því/

Chorus:
Taktu þig taki þegar veruleikinn slær þig
lífið er dýrmætt, og þitt, hangir á bláþræði
segist trúaður en afneitar jesú,við smá mótlæti
samt dó hann fyrir þínar syndir! hvar er þakklætið
“Only God Can Judge Me - Tupac Shakur”