topp 5 plötur?
1. Kanye West - Graduation (Frábær beat og platan góð í heild sinni… Ég skil allveg að sumir fýli ekki textana hans enn t.d. Homecoming var mjög sniðug ríma og nokkrar skemmtilegar línur þarna.
2. Talib Kweli - Ear Drum (Þetta er platan sem ég hlustaði oftast á í sumar held ég… Var í standslausri spilun í I-podnum mínum alla sumarvinnuna… Verð samt að viðurkenna það að ég hef bara hlustað á leak-ið enn aldrei retail plötuna í heild sinni… Talib kweli er náttlega einn sniðugasti mc í senunni núna og fyrsta versið í “Hell” er eitt af mínum uppáhalds versum)
3. Common - Finding Forever (Brjálaðar rímur, brjáluð bít frá góðum producerum t.d. kanye west og skrötz frá Primo… Ein af bestu plötunum held ég þó The Game standi uppúr sem lang besta lagið á plötunni)
4. Lupe Fiasco's The Cool ( Nenni nú varla að segja hvað mér finnst um þessa plötu enn einusinni :)
5. Cunninlynguists - Dirty Acres (Hafði nú ekki gaman af meirenn helminginn af textunum enda er þema plötunnar þræla hald og barátta svarta mannsinns sem ég er nú ekki mikið inní… enn þeir redda þessu með nokkrum lögum þarna og beatin eru öll mjööööög góóóóð ekki eitt sæmilegt beat öll mjöööög góóóð)
topp 5 lög?
1. Lupe Fiasco - Dumb It Down (lyricin biluð og sendi skýr skilaboð til gagnrýnenda og hlustenda)
2. Statik selektah - Stop Look and listen (again verið að senda skýr skilaboð)
3. One be lo - I'm in hip hop heaven (Svona lag sem maður getur hlustað á endalaust… frábært lag í alla staði og maður heyrir eitthvað nýtt í hverri hlustun)
4. Pharohe Monch - Desire (titil lag plötunnar og well beatið, rímurnar, flowið allt virkar)
5. Talib Kweli - Oh my stars (Man ekki hvort þetta lag hafi verið kippt útaf retail-inum eða breytt r something… enn damn þeir sem hafa heyrt þetta skilja mig öruglega… Damn byrjar þarna á því að sonur hans rappar og svo mætir talib og rappar um börnin sín og damn þessar tilfinningar þessar rímur… “daddy you know any superstars? I looked at her and said ”stop bein silly thats what you 2 are"… væri hægt að quota hverja einustu línu í þessu lagi vááw)
topp 5 beat?
1. Kanye West - Champion (Produced by Kanye)
2. Jay-z - Fallin (Produced by NO I.D.)
3. Common - The Game ( Produced by Kanye West and dj premier)
4. Lupe Fiasco - The Coolest (Produced by soundtrakk … Damn þetta beat færir mig yfir í trance)
5. Saigon meets just blaze
topp 5 collabs? (Var nú ekki mikið af merkilegum collabs á árinu ef ég man rétt)
1. Kanye West, Lupe Fiasco, Pharrel - Us placers (Þeir komu þarna saman og mynduðu grúppuna crs)
2. T.I. ft. Eminem - Touchdown (Ótrúlega vanmetið lag held að rímurnar hafi farið yfir hausinn á fólki… Merkilegt collab í gangi þarna og eminem kom með einhver south hreim sem mér fannst reyndar asnalegt enn hann bætti það upp með biluðu versi)
3. Saigon ft. Jay-Z - Come on baby remix (Persónulega fannst mér lagið sem kom útúr þessu ekkert spes enn fannst frábært að sjá þessa artista vinna saman)
4. Talib Kweli ft. KRS-ONE - Perfect Beat (Fannst þetta bara svo táknrætt eitthvað don't ask me why)
5. Lupe Fiasco ft. Snoop Dogg - Hi Defination (Geðveikt lag… ég var bara mjög spenntur fyrir þessu lagi enda þarna hittist það sem ég elskaði í fimmta bekk í grunnskóla og hvað ég elska núna á fyrsta ári í menntaskóla… Snoop dogg er allveg búinn enn hann kreisti út fínu versi þarna… Lupe droppaði dope versi líka)