Var að eignast litla stelpu fyrir stuttu, og rímurnar fóru bara af stað svo ég gerði stuttann texta handa litlu :) endilega commenta :D

Lífsleiðin er þungur róður
fullt af hindrunum en mundu, guð er góður/
Allt gerist af ástæðu Emilía
góðir hlutir gerast hægt, en allt mun skýrast
fljótt klifraru uppí fangið á mömmu því þar er hlyjast
þó úti sé frost, snjór og þungskýjað/
Þig mun aldrei skorta neitt
því þú ert perlan hans pabba útí eitt/
Ég skal sýna þér allann heiminn
fyrir mér verðuru aldrei feimin
Þú ert barnið mitt og ég segi það hreykinn
10 fingur og 10 tær og allt saman breyttist
orðin gefa gæsahúð og blóðið mitt streymdi
gullfalleg, sterk og allt sem mig dreymdi/
varð að veruleika kl 8:44
fæddist ung mær svo undurfögur
hefur fegurð engin takmörk? ég leit-af svörum
lífið er ferðalag og við þrjú við förum/
Settu niður í bakpoka og leggjum af stað
skal sýna þér gullfoss, geysi og allt sem er þar
því orð eru ódýr! Þarf ekki nema penna og blað
sjón er sögu ríkari er mitt svar
Ekki er allt gull sem glóir, skal sýna þér það
í gegnum gleði og í gegnum tárin áttu mig samt alltaf að!
“Only God Can Judge Me - Tupac Shakur”