Sup!

Long Time , No posting texta ..
Ákvað að henda inn einum nýjum.. endilega kommenta !

Ég veit að vinir þínir vilja vera alveg einsog ég/
Og bara skilja ekki af hverju þeir hanga með þér/
Alvöru krimmi sem fylgir ekki reglunni/
Ert einsog bilaður ljósastaur , kveikir ekki á perunni/
Ég rappaf innlifun með texta fullan af siðblindu/
Nudda þig af kortinu einsog móðu á Prikinu/
Góður á sviðinu , og hef það alltaf svaka fínt/
Flýg á teppum með Aladín og skeini mér með sandpappír/
Fokk hvað það er ljótt að sjá whack emmsís rappa/
Óli L. þyrfti að koma og hefta kjaftinn á þeim saman/
Sjá til þess að enginn af þeim muni fá að spitta/
Geri þá áttavillta einsog bilaðan áttavita/
N viltu vita hvernig ég virkilega er ?/
Skal koma með lítið dæmi svo þú skiljir þetta vers/
Fer í bíl með tóman tank og fylli bara helminginn/
Segist svo vera útkeyrður og dæli í mig bensíni/


Ég er röff , tek stökk , brýt nokkur lög og sem lög/
Þarf ekki að vera Hrói Höttur til að skilja eftir ör/
Hræði börn , brýt glös , er meira grófur en möl/
Ég er sá eini sem get búið til gæsahúð á önd/
Þetter satt , kalt , svalt seg mér ef þú vilt battl/
Ég kem og skil eftir fleiri göt á þér en tattú og skart/
Sama hvað þú segir ,og þú reynir að flýja/
Þá finn ég þig og droppa sprengju einsog stríðsmenn í írak/
Talaðu skýrar því mér fannst þú segjast geta unnið mig/
Þú ert sóun á tónum alveg einsog misheppnað undirspil/
Ruslið þitt fer á sorpu á meðan að við rokkum/
Og stoppum ketti sem halda að þeir séu á toppnum/
Floppum ekki , því að Redrum eru alvöru/
Annað en feiks , sem koma ekki textunum úr fartölvu/
Gef mér breik , farðu heim því að þú ert bara engan veginn með flów/
Og stelpan þín er fokking flatari en útrunnið kók/ BLOW !


Viltu bíf ? Getur alveg eins heilsað strax uppá englana/
Öfugt við andlitið á sjálfum þér þá muntu aldrei meikaða/
Ég get ekki tapað , það bara er ekki inní myndinni/
Og ef að þú ert fyrirmynd þá mála ég yfir þig/
Ekki sjéns ég virði þig , slít frekar úr mér innyflin/
Ég er einsog snákur , aðrir emmsís eru fiðrildi/
Gerekki neitt nema rækta tré í garðinum Eden/
Þangað til að ég kem og brýt þá alveg einsog sement/
Sendi þá í herðferð , læt þá leika í sjúkum leik/
Bara vegna þess það kemur eintóm steypa út úr þeim/
Tímarnir breytast , núna graffa sumir með tússpennum/
N samt eru þeir meira fresh en þú , því þú ert úreltur/
Stemning á þínum tónleikum er ekkert nema blekking/
Læt rigna svo mikið á þig að það dugar engin regnhlíf/
Emmsís missa öndina , og það sést/
Að þeir myndu gera hvað sem er til að vera einsog ég/

Thx N' P´z !