Ég er búinn að vera að lesa korkana hér að neðanverðu og allt þetta kjaftæði sem búið er að segja um Anthony. Flestir sem eru búnir að segja eitthvað vont um hann eru að segja að þeir fýli ekki að hann sé að koma til Íslands og vera einhver big shot. Ég spyr bara; Eruð þið sem sagt á móti því að útlendingar komi inn í landið? Eruð þið ekki bara öfundsjúkir? Anthony var byrjaður að rappa fyrir meira en 10 árum. Hvað voruð þið að gera þá? Af hverju eruð þið að velta ykkur upp úr beef-i sem kemur ykkur ekki rassgat við? Og að lokum; Finnst ykkur eitthvað að því að Anthony sé að representa Brooklyn? Ef þið væruð í öðru landi, mynduð þið ekki representa Ísland?