Í kvöld verða útgáfutónleikar á Gauknum. Það verða 2 tónleikar svo allir aldurshópar geti mætt… Fyrri tónleikarnir eru fyrir 13-18 ára og byrja kl. 18:30 .. Seinni tónleikarnir verða svo fyrir 18+ og byrja á slaginu 22:30…
Það kostar 500 kall inn á báða tónleikana og upphitun verður í höndum StebbaHD og Skábræður á fyrri .. og svo Skábræður og S.Cro á seinni…

Endilega sem flestir að mæta og styrkja íslenska hiphop-ið … Verður rosa shów.. get lofað því !

Ég hef þó þær harma fregnir að ég get ekki selt diskinn á tónleikunum eins og var búið að lofa… Þar sem að fokking Carlsberg drekkandi á vinnutíma Dana djöflar brutu masterinn í fjölfölduninni… þar af leiðandi er ég ekki komin með eintökin í hendurnar og get því ekki selt hann á tónleikunum.
Honum seinkar líka í búðir um 2 daga… Sem þýðir að hann kemur í allar helstu plötubúðir 21 September… Vil biðjast afsökunar á þessari seinkunn þar sem mér finnst ekkert leiðinlegra en að geta ekki staðið við það sem ég segi.. En ég get því miður ekki ráðið því hvort einhver Dani sé fullur í vinnunni sinni eða ekki !

En látið sjá ykkur í kvöld og spread the word ! Ást og friður !

Dabbi T…