Vil vera nálægt henni og elta hana og fara hennar leiðir/
Vil geta komið henn’úr reiði og geta skemmt ef henni leiðist/
En ég þekki hana ekkert, svo hvað er ég að kvarta/
Hún glannsar og dansar en ég hrapa til fjandans/
Við erum eins og svart og hvítt, og hún er svo falleg/
Hef hugsað svo mikið um hana að það er ekki mannlegt/
Vil liggja með henni við varðeld, og dansa berfættur á rósum/
En ég hef aldrei dansað, og bara kemst ekki úr skónum/
Næstum hættur að mæta í skólann, hættur að læra síðan ég sá-þig/
En fokk með námið, það er ekki mikilvægara en ástin/
En svo sá ég hana í fyrsta sinn, undir 4 augu/
Ég varð allur aumur, og ég drukknaði í draumum/
Dreymdi um hana þakin í skrautum á skautum/
Fékk svo mikla störu að ég varð rauður í augum/
Hélt ég væri dauður því að hjartað var að hitna/
Var skotinn af ástarenglinum og hann hitti í fyrsta/
Þessi ást, og þessi stelpa gerir mig fjandi-æstan/
Fæ hana örugglega ekki í þessu lífi, en kannski-næsta/



En kom sá dagur að hún kom til mín, þessi elska/
Ég greip utan um hana og ætlaði sko ekki að sleppa/
Ég trúði þessu ekki en hún faðmaði mig fast/
Hjartað sló ekki í takt, það sló bara alltof hratt/
Og ég kyssti hana, og sagðist að elska hana að eilífu/
Og ég lofaði að vernda hana frá öllu vonda í heiminum/
Svo löbbuðum heim til mín, héldumst þétt í hendur/
Það var svo heitt á milli okkar að það myndaðist eldur/
Ég kveikti á öllum kertum, og við dönsuðum svo dátt/
Ég dansaði eins og ekkert sé á einhvern óskiljalegan hátt/
Enn altíeinu færðist hrollur uppum mjóbakið/
Gluggarnir opnuðust og kuldinn fór að brjótast-inn/
Kertin fjöruðu út einsog gömul tóbaks-bréf/
Ætli ástin-sé strax farin að kólna-hér/
Svo lögðumst við undir sæng til að hita hvort öðru/
Þetta var of gott til að vera satt svo ég þurfti sönnun/
Ég klíp mig til að gá hvort þetta sé bara draumur/
Fokk ég er orðinn vissum að ég sé vakandi með opin augun/
Er ég kannski dauður, er himnaríki svona/
Himnaríki er þá ljúft, því þetta er meira en ég hafði vonað/
En svo fór allt að myndast-svart, og rúmið fór að hrisstast-allt/
Hélt fast í stelpuna því ég vildi ekki miss’ana/
En ég virtist vera missa haldið, ég missti takið/
Var að missa vitið því ég fékk 30 hnífa í bakið/
Þetta samband, og allt þetta virtist vera fara’í burtu/
Reyndum að halda okkur, en fokk við duttum/
Þú veist á svona augnablikum sem-allt-líður-hægt/
Það var einsog við værum að dett'af-níjundu-hæð/
Rúmmið byrjar að hristast… þarf að halda mér fast vill ekki missa/
…takið af stelpunni …takið af rúmminu… takið af því sem var barað byrja/
Sambandið ætlaði sér að hristast í burtu/
við misstum fokk við duttum/
Sá gólfið nálgast enn áðurenn ég lenti þá varð-allt-svart/
púff… Ligg í rúmminu mínu aleinn og var að-vakna/
lít snökkt á klukkuna svaf yfir mig orðinn of seinn-shit/
Fín öll þessi ást.. var bara shit sem mig dreymdi/
www.myspace.com/listamadur Tjekkið á lögunum.