þetta poppaði upp í hausnum á mér
þegar ég var að segja við 4 ára soninn minn
hvað hann mæti ekki gera
og hvað væri rétt og rangt
————————————————

Þetta er rugl, sjáðu það er ekki létt að vera karlmaður/
í þessum heimi, því að hann er harður/
því eðli manns er að metast við hann/ meðan ég mann/
þegar ég var ungur sagði móðir mín,þú verður að vera hreinskilinn/
til að spila leikinn/
þú átt eftir að finna fyrir afbrýðissemi, og það verður sárt/
sumir er siðblindir, vita ekki hvað er rétt eða rangt/
tíminn verður erfiðari með hverjum andadrætti/
svo haltu þér fast, og passaðu þig á hverjum þú mætir/
þú átt eftir að eignast vini/
og sumir þeirra eiga eftir að vera þínir verstu óvinir/
ást áttu eftir að finna/ henni skaltu sinna/
sumir hlutir ganga ekki alltaf upp, svo gefðu þér bara góðan tíma/
því mart áttu eftir að læra, og við glíma/
svo hafðu þetta í huga, þegar þú tekur fyrsta skrefið/
ég tók mitt fyrsta skref, misstig mig og fell beint á nefið/
ég leit upp, hún brosti til mín og reisti mig upp/
þú veist, þú mátt ekki gefast upp/
þessi heimur er harður, enn þú heldur/
þú mát ekki líta undan, getur endað með tvær tómar hendur/
svo haltu áfram, eins og þú getur/
þú getur gert miklu betur/
———————————————-
endilega commetið / ekkert diss plz.