Ég ákvað að skella þessum texta hér inn því hinn textinn minn fékk góða dóma. Þetta mun vera á Upprunalega Folkið
Demoinu


Ég hef aldrei trúað á ást við fyrstu sýn
þangað til þessi undur fagra stelpa gekk til mín
þarna kom hún hægt og rólega svo snyrtileg og fín
heitir þú ekki Ramses sagði röddin ótrúlega blíð
ég sagði henni að það væri satt og sagði henni að hún væri ótrúlega fríð/
ljóst liðað hár, þessi bláu augu sem sigruðu hjartað mitt
ótrúlega velvaxin og þú deyfðir hvert mitt einasta skilningarvit
þarna stóðstu fyrir framan mig og ég roðnaði
í hvert skipti sem þú sagðir eitthvað og ég dofnaði
þegar fallega rödd þín lét í sér heyra sem englasöngur
þú varst þarna gyðja allra mína drauma og yfir höfði þér ósýnilegur geislabaugur/
mér datt ekki í hug að ég myndi nokkurn tíman hitta mannlega engil/
en þú sagðist dýrka hiphop og en aðallega rapparadrengi
þú sagðir nafn þitt og það rann svo þægilega inn í huga minn
Lilja Björk sagðiru að það væri og spurðir hvort ég vildi verða þinn
ég þurfti ekki að hugsa mig tvisvar um og svarið var játandi
núna eru 2 ár síðan að við byrjuðum í þessu sambandi
ég alltaf trúað að þú værir hin eina sanna ást
við munum alltaf vera tvö saman og ávallt vera elskast en ekki þjást/

friður
Ramses