Tupac Amaru Shakur fæddist þann 16. Júní 1971. Foreldrar hans voru þau Afeni Shakur sem var öflugur aðili í Black Panther Party hreyfinguni og stjúpfaðir hans er Mutulu Shakur sem er nú fangelsaður. Tupac átti erfiða æsku þar sem hann var uppalinn á fátækra götum. Ferillinn hans byrjaði með fyrstu plötuni hans “2pacalypse Now” sem var gefin út árið 1991. Svo árið 1992 fékk hann stórt hlutverk í bíómyndinni “Juice” sem Bishop en eftir hana lék hann ennig í “Poetic Justice” á móti Janet Jackson og fleiri myndum eins og “Bullet”, “Gridlock'd”. Árið 1993 stofnaði hann gengið Thug Life með Big Syke og fl. Í Nóvember árið 1994 lennti 2pac í sinni fyrstu skotárás. Hann kenndi Notorious Big og Puff Daddy um þann glæp, enginn var dæmdur.

Sama ár og skotárásin átti sér stað var kynferðisleg kæra gegn unga rapparanum, ung kona gaf það fram að hún hafi verið að djamma með 2pac og félugum hans og að þeir hefðu nauðgað henni. Hann afplánaði dóm í 11 mánuði af dómi sem átti að vera 1 og hálft ár til 4 hálft ár.

Þann 7 semptember árið '96 lennti Tupac í sinni annari skotárás, hann var keyrandi um eftir að hafa byrjað slag á MGM hótelinu í Las Vegas með Suge. Þeir stoppuðu á rauðu ljósi og allt í einu var byrjað að skjóta í átt að bílnum, 2 skot hæfðu Tupac Shakur en eitt skrámaði Suge. Eftir þetta keyrði Suge á spítalan og þar var Tupac lagður inn. Sex dögum seinna dó hinn alþekkti rappari Tupac Amaru Shakur.

Takk fyrir mig