Þetta er harður heimur án miskunnar/
Kemst ekki af án þess að hafa viskuna/
Gatan er ekki staður fyrir lítil börn/
Þarft alltaf að horfa aftur og vera í vörn/
börnin leika ekki lengur á götunni/
það er ekkert að gera lengur í stöðunni/
Sérð ekki lengur bolta rúlla eftir grasinu/
brosin búin að víkja fyrir hatrinu/
Sérð dópistana hlýða kallinu/
Fremja glæpi til að eiga fyrir skammtinum/
Fréttirnar sýna bara frá vandræðum úti í heimi/
þegar að stærstu vandræðin eru okkar eigin/
einstæðar mæður með þrjú börn og eiga ekki neitt/
unglingar á götunni sem heilann á sér hafa steikt/
Heimilislaust fólk vafrar um göturnar í leit að flöskum/
Barnaperrar í skólunum sem njóta þess að níðast á börnum/
það vantar fólk sem vill gera eitthvað í málunum/
standa upp og taka völdin af bjánunum/
sem eru búnir að steypa landinu í glötun/
níðast á litla manninum og kissa rassa á ríkum köllum/
á hverju götuhorni sé ég spilltar löggur/
seljandi dóp og berjandi unglinga í stöppu/
það er kominn tími tíl fólkið fái valdið-sitt/
kominn tími til að hreinsa út á alþingi/

þeir réttlæta annara manna stríð með þínu-nafni/
láta þig styðja manndráp og ofbeldi með sínu-valdi/
ata hendur þínar í olíu og blóði annara manna/
við bakið á harðstjóra þeir fastir standa/
stríð um olíu og peninga í skjóli alqaeda/
ef þú ert ekki sammála ertu fangelsaður fyrir stæla/
við erum sokkin of djúpt og erum föst í síkinu/
stjórnvöld hér minna mig á kanslara í þriðja ríkinu/