Jæja jæja, þá er komið að því að við drengirnir í Studio23/LoKey records gefum út okkar annað mixtape. Teipið kemur á föstudaginn og verða sölustaðir nánar auglýstir síðar.

En að efni þráðarins. Það verður útgáfuparty á föstudagskvöldið á Barnum, laugavegi 22. Teitið byrjar um 22:00 og stendur eitthvað fram eftir.

Það verða skemmtiatriði í gangi og munu nokkrir vel valdir rapparar stíga á sviðið.

Teipið inniheldur ca. 20 lög, með artistunum úr 23 studios, t.d. S.Cro, Original Melody, SpitSpirit, Gun-J, Wald Vegan, Shape, Imagery, Sub-K, Fonetik Simbol, Feedback Seeds, Sophie, og fleirum, þannig að endikega tékkið á Teipinu og að sjálfsögðu tónleikunum á föstudaginn….

Peace. SpitSpirit