Pressan í kringum mig er að magnast
erfitt er að horfa til framtíðar
á öllum þessum áhyggjum ég ekki hagnast
mun ég líta til baka ósáttur síðar?
Hvað ef ég mun ekki fá drauma mína uppfyllta
heldur enda sem einstæður faðir?
Hvað veldur metnaði unglingspilta
og fær þá til að enda glaðir
Er það að sætta sig við það litla
eða kenna þeim að dreyma drauma,
hugsa um hluti sem þeir fá aldrei við að fitla
efni of mikið sem ekki næst úr að sauma

Ábyrgð er ekki auðveld til að bera
margir villast af leið og sig skera
stundum hugsar maður, hvað vill maður gera
því fyrr en varir er lífið búið að vera.