Einfaldir taktar með smá melódíu,
Keyptu þér og gangtu með stóra medalíu.
ef þú vilt vera rappari góður,
Keyptu þér þá skammbyssu og láttu sem óður.

Stofnaðu klíku og klæddu þig í slæður,
Gerðu svo driveby og dreptu nokkra bræður.
Láttu sem svartur þó þú sért nú hvítur,
Vertu svo harður þegar lögin þú brýtur.

WannaBe rappari sem getur engu breytt,
Settu saman rímu þó þú kunnir ekki neitt.
Settu útá rockið og segðu það sé dautt,
Semdu svo rímur sem er heilasnautt.

Fáðu þér Cevic og klæddu þig í blingur,
hótaðu pabba þínum og sýndu honum fingur.
Farðu svo í mótor og keyptu meira glingur,
Jafnvel þó það sé bara einn fuckin hringur.

Sérfræðingur ertu nú í rappi,
þú ættir bara að hrósa happi.
því nú getur þú drepið þína bræður,
Farðu nú út og sýndu hver ræður.
- © Jói Pé Ká!