Ok, ég hef ekki hundsvit á hip-hoppi og þessi þráður er ekki beint um hip hop heldur um sumt af fólkinu sem hengur hérna.

Ok ég er oft inná metall og t.d. núna fyrr í dag kom þráður sem hét “Metall suckar” (hmmm þroskað) frá notanda að nafni hiphopvictim eða eitthvað í á áttina (reyndar annaðhvort nýr notandi eða eitthver sem hefur búið sér til nýtt notendanafn til að dissa fólk, því að hann hefur bara 4 stig). Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem að óþroskaðir notendur (oftast hip-hop aðdáendur) koma inná /Metal bara til að skíta yfir Metal yfirhöfuð.

þetta gæti reyndar alveg eins verið eitthver metalhaus eða bara eitthver annar sem að skýrði sig hiphopvictim til að kasta sökinni á hip hoppara svo að hann gæti fengið smá juicy rifrildi.

En allavega ég var að pæla, þar sem ég er aldrei inná þessu áhugamáli þar sem ég fíla bara einfaldlega ekki hip hop ( Don't be hating :O ;) ) nema þá kannski eitt og eitt lag þá var ég að pæla : er mikið um að mealhausar komi inná þetta áhugamál BARA til að dissa fólk eða skíta yfir Hip-hop?