eins og sótdjarfur bakvörður mun ég sækja á þig/
ég mun taka í þig, ég er ekkert að flækja málinn/
ég mun elta þig eins og skuggin á hælunum/
munt finna fyrir því að færast nær okkur/
eins og köttur, ég ræðst á þig að óvörum/
sjónin verður ófögur og vitna svo þögul/
eins og haust á móti tréi tek ég af þér laufin/
allar nætur andvaka því þú sást mig í draumi/
en eins og allir, þú reynir að streitast á móti/
en hvað hefur varnalaus skepnan á móti spjóti/
eins og hreint alkahól þú getur ekki fryst mig/
að ná taki á mér er eins og ná tak á fiski/
ég er gaurinn sem skyggir á hliðina björtu/
ég er svo dark að ég lýsist upp með svörtu/
svo láttu mig í friði því þú gætir orðið andsetinn/
aðvörun, þú veist vel að ég er vanmetin/

Viðlag:1
það sem við gerum, gerum við fyrir alvöru/
látu okkur í friði, lýttu á það sem aðvörun/
ekki reyna á það að reita okkur til reiði/
gefðu okkur högg og við gefum þér fleiri/


BBQ
Ekki einu sinni reyna það/