Heh… Já ég játa, ég er fullur. Mig langaði samt að skrifa texta svo ég skrifaði eitthvað smáræði, og ef ég væri ekki fullur væri ég líklega ekki að reyna að birta þetta á huga. En já, svona er ég skynsamur.




Allt á fullu, bíllinn brunar og hlátrasköll heyrast/
Þangað til skyndilega bílstjórinn tekur upp á að reiðast/
Allir höfðu sloppið þegar bíllinn útaf fór seinast/
En nú er vægt að segja að fólk hafi verið að meiðast/
Bíllinn á hvolfi og blóðslettur lengst útá veginn/
Bílstjórinn augun opnar, virðist ómeiddur og frekar feginn/
Lítur sig í kringum, bregður og feginleikann fælir/
Horfir beint í dauð augu kærustunnar, og hann ælir/
Stekkur upp og í kringum hann eru vinir hans særðir/
þetta hafði hann sjálfur gert, í smá stundarbræði/
Finnur smásting, svo hann lítur þarsem hann lenti/
þar er einhver hlutur, og hann fattar, að þetta er hans hendi/
Og hugsið ykkur, enginn hefði meiðst hefðu verið notuð belti/