Sælir félagar,
ég er staddur í Kaupmannahöfn og fór á tónleika með þeim O.C. og El Da Sensei. Tónleikarnir voru alveg magnaðir og þeir félagar fullir af orku og mikil stemning.
En eftir tónleikana rakst ég á DJ Kaos(El Da Sensei) og spjallaði aðeins við hann. Hann sagði mér það að þá langaði að koma aftur til Íslands og væru að reyna að koma aftur. Hann spurði hvort það væri ekki hægt að redda því.
Væri ekki þess virði að athuga það og reyna að koma þeim til landsins?
Þetta var virkilega þétt show hjá þeim og það væri mjög gaman að fá þá til landsins og þess má geta að O.C. sagði í lok tónleikanna að hann ætlaði að leggja micinn á hilluna og snúa sér að einhverju öðru, þetta gæti því verið síðasti séns að fá þessa goðsögn til landsins.