ég gerði mestu mistök sem ég á ævinni hef gert
núna ligg ég í sjúkrarúmi dauðvona og bæði sjón og heyrn er skert
ég lenti í því að vera freistað af djöflinum og fyrir því ég féll
endalausar martraðir, já ég fékk minn skell
það byrjaði þannig að ég var úti með vinum mínum
þegar bíll keyrði á mig maðurinn keyrði með mig á sjúkrahúsið í bílnum sínum
klukkutímum saman var ég meðvitundarlaus
þótt enginn í heiminum hafi skilið hvað gekk á í mínum haus
mig dreymdi að ég væri lokaður inní dimmu herbergi
ég fékk innilokunarkennd en gat ekki vaknað því líkaminn var enn í roti
skyndilega lýstist herbergið upp en ljósið var rautt
maður kom inn hann lyktaði eins og eitthvað dautt
ég spurði hvað hann vildi, hvar ég væri, af hverju og hvers ég gyldi
hann sagði mér að vera rólegur hann ætlaði með einu skilyrði að sína mér mildi
ég varð skíthræddur í fyrstu og öskraði hvað í fjandanum hann vildi
ég var á báðum áttum en gátur voru eitthvað sem ég ekki þyldi
hann hló og sagðist vilja gera mér tilboð
hann vildi kaupa sálu mína ég spurði hvað ég fengi í mitt soð
allt sem vildi þá hugsaði ég og spurði hver hann væri
þá varð hann reiður og sagðist ætla að klippa mig eins og skæri
ég hefði betur dáið þar og átt möguleika á himnaríki
en eins því miður ég er heimskasta vera heims bara í mínu líki
sagði ég já hann hló og strax eftir það hann hvarf
ég raknaði úr rotinu og hélt mig hefði dreymt þennan ljóta skarf
eftir tvo daga á sjúkrahúsinu fór mig að langa heim
mér var ráðlagt að vera lengur en ég ætlaði ekki að vera lengur en ég þarf
það var bara gott að vera kominn heim og ætlaði ekki að láta neitt dragast á langinn
ég fór aðeins á röltið og fékk mér svo í svanginn
þegar ég seilaðist í vasann eftir peningum
var minnst heil milljón öll í fimmþúsundköllum
til þess að láta á litlu beri lét ég sem ekkert væri
ég borgaði og gat ekki beðið eftir að ég færi
þegar skyndilega sá ég manninn fyrir mér í mínum huga
tilboðið sem hann bauð og hvarf svo eins og gufa
ég var hræddur og vissi ekkert hvað ég væri að hugsa
allt hringsólaðist fyrir mér og svo sofnaði ég
ég vaknaði uppi á sjúkrahúsi við hrikalega martröð
fólkið sendi mig til sálfræðings og ég átti að teikna á blöð
allt sem ég hafði séð og dreymt upp á síðkastið
ég reyndi að teikna manninn í snarhasti
ég var rennandi sveittur ég var þreyttur
ég gat ekki hugsað því hugur minn var áreyttur
ég fann fyrir hníf innan mér og hann var beittur
ég fann að innan í mér var neikvæð orka og ég var illskeyttur

er ekki búinn með meira framhald…