Proof kominn sex fet undir. Spect' á hann. Svo er Jay Dilla nýfarinn líka. Ekki gott ár fyrir hip-hop og árið er ekki einu sinni hálfnað. Annars fór ég að hugsa þegar ég las um Proof. Er ekki frekar sorglegt hversu lágt Eminem er sokkinn? Kappinn er á góðri leið að missa virðingu allra í bransanum. D12 var alltílæ grúppa og 8 Mile var fín mynd en undanfarið er hann í tómu rugli. Encore var slök og nýju lögin sem fylgdu bestof disknum hans eru bara hreinræktað rusl. Ég held ég geti fullyrt að lagið Fack sé það versta sem ég hef nokkurn tímann heyrt. Textinn lyktar af barnaskap, dópreykingum (of miklum) og sáralitlum metnaði.

Sorglegt að gaur sem gerði tvær massa flottar plötur með línum eins og;
You better, get rid of that nine, it ain't gonna help
What good's it gonna do against a man that strangles himself?


…er farinn að endurtaka sig, semja texta eins og 13 ára krakki og farinn að skreyta annað hvert lag með prumpuhljóðum. Gaur, prumpuhljóð? Þau voru fyndin….aldrei?