Mario Etheridge heitir maðurinn sem skaut Proof til bana og er hann i gæsluvarðhaldi um þessar mundir.. og var hann dyravörður á staðnum CCC Nightclub. Hann gaf sig sjálfur fram við lögreglu eftir að mörg vitni höfðu bent á hann. Lögfræðingurinn hans segir hann ekki hafa gert neitt rangt þar sem Proof á að hafa skotið fyrst en soldið skrýtið þar sem kemur fram að Proof hafi verið skotinn 3 sinnum i höfuðið og 3 sinnum i brjóstið, skrýtin sjálfsvörn að mínu mati. Lögreglan telur að slagsmál inni á klúbbnum hafi komið skothríðinni af stað stuttu seinna. Lögreglan í Detroit er nú að yfirheyra um 40 manns sem geta upplýst hvað gekk í raun og veru á inná klúbbnum þetta kvöld. Talsmaður lögreglunnar í detroit segir að sá sem skaut proof hafi verið að verja sig eða einhvern annann og gæti vel farið svo að hann verði ekki kærður fyrir morðið á rapparanum.


http://www.mtv.com/news/articles/1528549/20060412/proof_of_d_12.jhtml?headlines=true

Finnið fréttina hér á ensku og alla!
“Only God Can Judge Me - Tupac Shakur”