Ég var bara ringlaður og ráðavilltur
var þannig í langann tima, þar til við hittumst/
þú sýndir mér ást og tókst mig að þér
þú skilur mig og sérð það sem enginn annar sér
ég á erfitt með að segja takk þannig ég skrifa þetta bréf/
var fastur á stað þar sem ég var ekki velkominn
leið aldrei vel þar, leit illa út,og alltaf ósofinn
en þú réttir fram hjálparhönd og ég sá að ég var ekki óboðinn
allt breyttist á þessari mínútu um leið og ég steig fæti inn/
eftir það var ekki aftur snúið og ég lýt ekki um öxl
þú færð ekki að fara frá mér sættu þig við það! þú ert föst/
vill ekki vera væminn en ég þarf samt að tjá mig
það var eins og lottóvinningur að fá þig/
hef horft uppa vini mina drukkna í sorgum
ég ræð ekki við það! ég hugsa bara verðuru enn hér á morgun?/
tilfinningalegt tjón er mun verra en skot í hjartað
sama hvað mun ganga á, þá áttu mig samt að/
í gegnum gleði og í gegnum tárin
stend ég með þér og við plönum árin/
því við eigum okkur framtíð saman
þó það verði gleði, sorg og drama
flytjum vonandi i fjörðinn því ég er þaðan
hef alist upp hér og ég vill ekki fara
þú spurðir margra spurninga og núna er ég að svara/
á erfitt með að tjá mig undir fjögur augu
veit ekki afhverju væntanlega bara einhver fortíðardraugur/
Þetta er minn besti tjáningarmáti
ég vissi að þú værir sú rétta fyrst þegar ég sá þig
ljóshærð, blá augu, falleg og ég varð að fá þig/

Bara smá uppkast! Fá smá álit svo ég viti sona hvort það sé þess virði að reynað klára þetta :P

Peace!
“Only God Can Judge Me - Tupac Shakur”