Bandaríski tónlistarmaðurinn Eminem og Kim Mathers, eiginkona hans, eru að skilja aftur en þau giftu sig á ný fyrir tæpum þremur mánuðum. Hefur Eminem krafist lögskilnaðar og í gögnum, sem hann hefur lagt fyrir dómara kemur fram að engar líkur séu á sáttum.

Í gögnunum kemur fram að Kim sé ekki vanfær og Eminem, sem heitir réttu nafni Marshall Bruce Mathers III, fari fram á að þau hjónin hafi sameiginlegt forræði yfir 10 ára dóttur þeirra.

AP fréttastofan hefur eftir lögmanni Kim, að það hafi komið henni á óvart að Eminem hafi lagt fram formlega skilnaðarkröfu.

Eminem og Kimberley Anne Scott tóku upp samband á meðan þau voru í menntaskóla og giftu sig síðan en skildu fyrst árið 2001. Þau sættust í lok ársins 2004 og í desember tilkynnti Eminem að þau ætluðu að gifta sig aftur.

Þau Kim og Eminem ólust upp við Eight Mile Road í norðurhluta Detroit. Eminem fjallaði gjarnan um stormasamt samband þeirra í textum sínum eftir að þau skildu í fyrra skiptið.