ok hérna kemur textinn fyrir taktasmiði ‘'auglysinguna’'…Tek það frma að þetta er fyrsti textinn minn þannig að etta er ekkert pro eða eikkað:/ endilega comment og segja hva eg þarf að laga og bæta;)

//Verse1//

Ég stend hér í birtunni,bíð eftir svari/
Veit ei hvad kom fyrir og veit ei hvort það fari/
Veit ekki hvað það er og veit ei hvaðan það kemur/
Það eina sem ég veit er að kanna vil ég það betur/
Heldur en allt annað sem að umverfið sýnir/
það er ekkert eftir nema textarnir mínir/
Langar að brjótast út en ég veit ekki hvernig/
Það eina sem ég sé út er andskotans regnið/
Mér finnst ég ekki geta talað eða haft samskipti/
Finnst ég vera týndur og ég fæ engin símskeyti/
Vona bara að bráðum muni lífið verða betra/
Vona að ég komist þessa síðustu metra/
Reyni að halda áfram,eitt skref í einu/
Reyni að hafa alla hluti alveg á hreinu/
Gera þetta,gera hitt, hvað er fólk að hugsa/
Ég reyni að verða betri,og texta mína að fixa/
Margir rapparar rappa bara fyrir frægðina/
Sumir meika það,en aðrir missa bara vinina/
þessir rapparar eiga ekki að semja í þessum heim/
sama ruglið,sama bullið, always the same/

//Viðlag//x2
Þetta er lífið,hvort sem að þér líkar það eða ei/
Hvernig þú munt lifa því,það enginn veit/
En ef þú vilt verða frægur,klár eða ríkur/
Skaltu halda þig við metnaðinn,eða frá þú víkur/


//Verse2//

Ég reyni að gera mitt besta og texta mína að brýna/
Reyni að bæta flowið,og hafa eitthvað að sýna/
Betri ég alltaf verð,þangað til að ég verð bestur/
Eins og Davíð er hann drap Golíat,þá varð hann mestur/
En í Biblíunni segjir:Þú skalt elska náungann/
Ef að Davíð var trúaður,af hverju þá að drepa hann?/
Þessi heimur er lítill en nógu stór til að vera harður/
Guð er garðyrkjumaður,og þetta er hans garður/
pabbi er vinnumaður og sömuleiðis er mamma/
frændi minn er dáinn,og það er bara ein amma/
einn afi,öll mín fjölskylda er löngu farin/
Systir mín er fræg,en hún stefnir alltaf á barinn/
Stundum er ég leiður,og langar bara ad deyja/
og stundum verd eg reiður,og hef ekkert að segja/
Af hverju er lífið svona erfitt,endalaus vandræði/
Guð skapaði þennan heim,en eg skapaði Mc.Flæði/
Ef að djöfullinn hefur áhrif,þá er ég greinilega í vímu/
Ég verd betri med tímanum og hverri einustu rímu/
Þetta eru mínar ákvarðanir,mínar stefnur og áform/
Þegar ég er uppá sviði fæ ég 100% áhorf/

//viðlag//x2

kemur kannski skrytið út en etta er öðruvisi i Word ef etta misheppanst setid etta þá bara þangað;)