Eins og sumir hafa eflaust tekið eftir hefur auglýsing tengt tónleikum í kvöld vakið mikla athygli. Grein var birt í Morgunblaðinu og umræður áttu sér stað í morgunþættinum Ísland í bítið. Hægt er að sjá greinina á eftirfarandi link http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1185524.

Ég get ekki talað fyrir hönd annarra hljómsveita en ég vil hins vegar byðjast afsökunar fyrir hönd Original Melody, þrátt fyrir að auglýsingin sé ekki á okkar vegum.

Í leiðinni vil ég hvetja alla til þess að mæta á tónleikana því ljóst er að þarna mun eitthvað eiga sér stað sem fólk vill ekki missa af.

Tónleikarnir hefjast klukkan 20:00 og það kostar ekkert inn!

Imagery