Ég var eitthvað að skoða netið í gær og þá sá ég frétt á allhiphop um Tom Green. Ég vissi að hann væri rapp-áhugamaður en vissi hins vegar ekki að hann hefði gefið út rapp disk. Ég fór því að leita og downloadaði disk sem hann gaf út sem heitir Prepare for Impact. Ég hélt að þetta væri bara eitthvað comedy-rapp en nei hann var bara að gera þetta að alvöru. Auðvitað nær hann ekki sama leveli og frægustu og bestu rappararnir en kom samt sem áður á óvart. Sérstaklega eru skemmtilegir smellir eins og Teachers Sucks og People in my Neighborhood. Tom Green fékk hjálp frá þeim DJ EZ-Mike sem pródúseraði fyrir Beastie Boys og Mike Simpson í Dust Brothers. Skemmtileg hlustun sem styttir langan og leiðinlegan vinnudag.