Mér finnst í fyrsta lagi asnalegt að setja inn kannanir sem spyrja hver er besti hitt og þetta því að það er ekki til neitt sem er best. Kannski ættuð þið að spyrja frekar hver er í mestu uppáhaldi hjá viðkomandi.
Í öðru lagi eru yfirleitt ekki nógu margir möguleikar í boði. Og að ég tali nú ekki um að þeir sem senda inn kannanir setja sjálfa sig inn í þær. Mér finnst ég bara alltaf vera að sjá sömu könnunina aftur og aftur.