Hérna birti ég battl sem ég átti í við Redfish núna áðan. Someone call this sucker.

Redfish:
sit sveittur fyrir framan tölvuna/
hugsa um [nafnið mitt] og mömmuna/

spalinn:
gaur, gættu þín, þú ert að fara'á hálan ís/
þú ættir kannski að passa meira upp á hana álfadís/
(álfadís er vísun í kærustuna hans)

Redfish:
pabbi þinn sjálfstæðismaður/
þú kemur ekki með neitt nema blaður/
þeir hringja í mig í tíma og ótíma/
þú skalt passa þig þegar ég fer að ríma/

spalinn:
Ef allir væru kommúnistar, þú værir ekki að ríma/
Þá gæti enginn hringt í þig, þú ættir ekki einu sinni síma/
Varstu’að reyna að segj’eitthvað því ég heyrði bara suð/
Ég kasta frá mér rímum meðan frá þér kemur aðeins tuð/

Redfish:
Ef allir væru kommúnistar, ættu allir síma/
það þyrfti enginn við fátækt að glíma/
motherfucker, þarftu heyrnartæki/
því þegar ég bösta, það verða læti/

spalinn:
Ef allir væru kommúnistar, öll lönd sem þróunarríki/
Engin tækni, engir símar og fátækt yrði beatið/
Ég sagðist aldrei heyra ekki bara að frá þær kæmi ekkert af viti/
Ég rústa þér hverjum degi’ og án þess að mér spretti sviti/

Redfish:
Að þú rústir mér það er fásinna/
hvenær fer þessum whack rímum að linna?/
ég er búinn að finna 5 geðlækna sem vilja sinna/
þér og passa að þú böstir aldrei aftur/
og í síðasta sinn hættir að reyna að vera harður

spalinn:
Rétt af þér að kalla’á geðlækna, ég er ótaminn og illa agaður/
Og já, þú ættir að vona að ég bösti aldrei rímur aftur/
Því þá hættir niðurlægingin og þú getur lifað áfram/
Hættu bara’að tala, þú heldur virðingu á þann mátann/

Við ákváðum að hætta þarna. Jæja, eins og ég segi, someone call this sucker.