Stíg núna á stokk og geri mig reiðubúinn að egóast/
gríp í mækinn, sviðið hoppa upp á en dett þó - krapp/
læt það ekki hafa áhrif, breiði úr mér, en þjófar/
ryðjast inn og ná mér niður, veskið taka - hell no, krapp/
Krádið ekkert gerir, situr bara og hlær að minni óheppni/
ég sest upp og öskra að ég þekki betra fólk en flest fólk þekkir/
get ekki tekið ósigri, fljótt upp stend og ég stól hendi/
en við það gaurarnir verða ófeimnir/ við að sýna sína miklu reiði/
ég hörfa fljótt og reyni að semja frið en engu breytir/
þeir eru fimm á móti einum - fjandinn hirði ósanngjarna leiki/
einn tekur upp byssu en ég er fljótur og tek af honum byssuna/
sný mér við og næstum óvart skýt skoti að systur hans/
fokk, þarna er ég, stóra klípu í kominn/
ef ekki verð ég drepinn pottþétt punginn verð í skotinn/
umkringdur af gaurum morðóðum er orðinn/
loka augunum og bið fallega til Drottins/
um að ég á lífi sleppi burt og haldi um leið kúlinu/
gríp til varnar konu sem vinnur hér að skúringum/
sest upp skyndilega, staddur er í björtu rúminu/
draumurinn horfinn er, farinn er með húminu/