Þegar ég flæði, þegar mig blæðir, um þetta vandamál ég ræði/
því flestir gera það í einhverju stundarbrjálæði/ En ekki ég/
Róa mig niður, anda rólega og sest niður/ Því að ég sé/
Að æsingur er aðeins sýndarmennska og tilbúningur/
Nota frekar pennann og læt flæðið renna um minn fingur/ Því að/
Tala þig í kaf er máttugra en að berja þig í spað/ Því að/
Þú stendur uppi en ert miklu minni maður fyrir vikið/
Ef ég drep þig núna þá hef ég áhorfendur svikið/ Viltu meira/
Hið ritaða orð skal dæma þig og þú skalt það heyra/
Í réttarsalinn skalt þú mæta/ Þú skalt refsingu sæta/
Þú skalt þinn innri mann byggja upp, þjálfa og bæta/
En Jesú sonur Guðs kemur ekki til bjargar að þessu sinni/
Þú færir með Faðir vorið bara ef þú það kynnir/ En þú/
Æstir þig og bíður nú þess að æsinginum linnir/ Því að/
Þú vilt ekki enda framan á DV með hettu á hausnum/
Reynir að tala við lögfræðing þinn og leitar að lausnum/
En það er aðeins ein leið út úr þessu vandamáli þínu/
Lestu fyrstu línurnar og farðu eftir þessu versi mínu/