ég var að pæla í því hvort 50cent sé til í allvöru… hver heldur svosem að hann semji lögin (taktana) sína sjálfur…? hver heldur svosem að hann semji textana sína sjálfur…? hver heldur svosem að hannrappi inná plöturnar sjálfur…?

ég held að þetta sé bara ein stór sölubrella. það sé bara ein stór sölubrella. að þetta sé bara svipað og grísinnn baddi. það lék enginn einn grísinn badda heldur voru notaðir svona 20 grísir til að leika þessa einu persónu og svo einn leikari (reyndar fleyri ef talað er um tungumálin sem baddi var þýddur yfir á) sem talaði fyrir hann.

ég held að sá eini sanni 50cent sé ekki til heldur sé þetta svona einn sem sér um að láta takamyndir af sér og hreyfa varirnar í micinn, annar sem sér um að tala í svona viðtölum og dissa gaura og lenda í slagsmálum, einn sem sér um að semja textana, einn sem sér um að rappa inná diskana, einn sér um löginn og svo í myndböndunum er þetta risastóra hús hans bara klippt inní. þessi fyrirsæta sem sér um að dansa í myndböndunum á ekkert svona stórt hús í allvöru heldur er þetta bara plat… svo er ja rule örugglega bara ósköp venjulegur gaur sem var borgað fyrir að þykjast hafa ráðist á 50 til að auka vinsældir “50cent”.

semsagt allt rapp er bara plat :D