Hjartað slær, alltaf nær, en svo er stopp
Þá skaddast æð, allt í lægð, upp í topp
hvað gerist þá - enginn veit en ég strengi heit
að komast til baka og hafa sögu að segja
hvernig það er í rauninn' að deyja
þarftu að uppfylla skyldur eða færðu drauminn að reyna
er guð góður eða daunillur playa?
Hleypir hann öllum inn eða fer í sauminn á þeim, ha?
Hitti ég skyldmenni sem hurfu úr lífinu
ber ég skynbragð af þessu eða verður þetta ímyndun?
ráfar sálin um eða er mig að dreyma
um að ég sé á himnum og þurf'ekki helvíti að reyna?
Deyjum við í rauninni eða erum við í lifanda lífi
ráfandi um stritand'í stríði, vitandi lítið
eða erum við dreyminn, eins og titrandi trítill
sem kallar sig mc og er að skrifa við bítið
er jarðaförin fæðing, og fæðingin dauði?
Eru úrslitin ljós og er æfingin auðnin?
í þessu spurningaflóði þá fæðist ein draumsýn
er guð okkar hugsun og er þá pælingin kauði?