Meðan að sekúndurnar tifa hugsa ég jákvætt
Sýnist brautin vera greið og allt vera frábært
Ég geri hluti táknrænt á mic svo ég komist nálægt
Draumnum mínum þar sem stríðið er sálrænt
Stend í baráttu sem kostar mig blóða svita og tár
Læt þjóðina fá sjónina á þenna stór yrðis strák
Láta frægða sólina sjást og nota tónlista mál
Stefni óhemju hátt svo aðrir finna ógnina brátt
Því svona er leikurinn og allir vilja sigra
Og enginn vill liggja flatur og láta tapið fylgja
Ég mun sitja við mitt blað og yrkja mitt lag
Og mun styrkjast við að skrifa meira en tvisvar
Texta á dag svo að ég verð betri í dag en í gær
Takmarkið nálgast og ég tek skrefið því nær
Og bindi skónna fasta og bretti upp ermar
Því núna er ég tilbúinn í að láta ferilin hefjast