Ég tók eftir einu flottu í rapplaginu úr Kill Bill vol.1 (lagið hét; Ode to Oren Ishi). Textinn er saminn eftir dróttkvæðareglunum. Þar sem ég veit ekki neitt um rapp/hip hop/hvaðsemþiðkalliðetta þá spyr ég ykkur hvort þessi kvæðastíll sé algengur í textagerð í rappi/hip hopi/hvaðsemþiðkalliðetta? Annars var þetta sæmilegt lag þótt textinn sé eina sterka hlið þess.