Vinur minn benti mér á þessa hljómsveit um daginn og ég verð að segja að þetta er með því skemmtilegra sem ég hef heyrt lengi. Fyrir þá sem ekki vita spila Svenska Akademien reggae-skotið hip hop, og rappa að sjálfsögðu á sænsku. Tóndæmi undir “Media” á http://www.svenskaakademien.just.nu/

Þó ég sé ekki mikill hip-hop maður (eina hip-hop platan sem ég hef almennilega hlustað á fyrir utan þessa með SA er Doggystyle) þá er ég alveg að fíla þetta í botn, og langar að spyrja ykkur hvort þið gætuð bent mér á einhverjar svipaðar hljómsveitir? Þ.e. rappa á tungumáli öðru en ensku og blanda jafnvel genre-um eins og reggae saman við hip-hop.

Zedlic