Ég var núna að koma heim og er alveg hæst ánægður. Ég leit inní smáralind um 8 leytið og viti menn þarna var Hæsta Hendin að árita diska og plaköt.

Ég keypti diskinn og fékk á sama tíma gefins áritað plakat frá þeim. Ég er alveg að springa ég er svo ánægður útaf því. Ég kom heim setti það uppá vegg og setti diskinn í gang.
Ég hafði nú heyrt nokkur lög af honum áður og nú gat ég hlustað á hann eitthvað almennilega. Og viti menn þetta er frábær diskur, mæli eindregið með honum.

Síðan kom mér á óvart að Proof featurear í einu laginu þarna hjá þeim. Allavega frábær diskur og frábærir gaurar. Var þarna í smá stund að tala við þá, bara góðir…

Nettur diskur sem allir ættu að fá sér.