Hvað gerist ef þú tekur skrefið til vinsti en ekki hægri
Tekur aðra ákvörðun, um vandamál sem þér mætir
Mun dagurinn verða öðruvísi, eða bara þetta eina skref
Mundi þessi ákvörðun kannski breyta þér
Hugsaru um hvað hefði geta orðið ef annað hefði ekki gerst
Hefði lífið orðið öðruvísi eða hefði það gerst á annan veg
Hefðiru reynt að sjá fyrir erfiðleika og reynt að forðast þá
Reynt að sjá það slæma, sem hefði leiðir til að komast hjá
Hefðirðu þá hugsað þig tvisvar um og tekið skrefið til vinstri
Ertu þá viss um að erfiðleikarnir og sorgin yrðu minni
Ef þú hefðir ekki kynnst þessari sérstöku manneskju
Þessari sem lét þig horfa til himins og spyrja afhverju
Hefði þá allt verið í lagi eða hefði önnur komið í staðinn
Hefðirðu sleppt því að sína henni bréfið og brennt blaðið
Hefðirðu beygt í hina áttina ef þú bara vissir
Um barnið sem hljóp í veg fyrir þig og þú keyrðir yfir
Hefðirðu kannski sleppt því bara að stíga upp í bílinn
Og þá sérstaklega ekki til þess að setjast undir stýri
Hvað gerist ef þú tekur skref til baka en ekki áfram
Breytir það því hvernig örlög þín munu ráðast