jæja, þar sem það er ekki mikið um nýtt efni hérna þá ákvað ég að koma með eitthvað shit

ég er svo ákveðinn, ákvað að standast þetta
rakst utan í póstkassa, keyrði á 4 bíla allavega
þetta er alltaf erfitt, ætlaði að að ná þessu öruggt nú
ég ætlaði að standa mig, gott veður en ég keyrði á fjögur hús
stoppaði á ljósum, kíkti á hinn bílin, fann samkeppni
fór í spyrnu við hann, gekk vel en þá að lokum sprakk dekkið
ég var góður fannst mér, keyrði á þrjá ruslakalla
tók U-beygjur allstaðar áður en ég keyrði á brunahana
ég eyðilagði mikið af bænum þótt ég var nýkominn
en ég hélt fast í minn eina draum, að verða góður bílstjóri
ég er ekki heimskur gaur, en eyðilagði minn fyrrum bíl
þessi tími kenndi mér mikið, ég lærði allavega að skiptum gír
vil eiga ljótan bíl, finnst það flottara og líka rosa töff
vildi vera svalur og opnaði gluggan, en var þá inná bílaþvottastöð
er að taka prófið í áttunda sinn, mín tækifæri hverfa
allir hötuðu bílinn minn en mér fannst hann vera glæsikerra



að ég sé lélegur á bíl, það er minnsti gallinn minn
ég missti vinnuna líka, ég keyrði óvart á yfirmanninn minn
ég sakna þess að vera á bíl, það var svo illa fjörugt
ég bara elska bíla, samt er ég bannaður á öllum bílasölum
ég bjóst við ágætum einkunum, fékk í öllu c mínus
ég fæ aldrei prófið, og nú skulda ég helling af peningum
keyrði á mann og annan, sjúkraliðið kom með börurnar
varað við mér í fréttunum, rúllandi á 40 niður göturnar
ég er alls ekki slæmur, ég bara elska að keyra bílinn minn
með SCOOTER á botni maður, þá kemst maður í rétta fílingin
allt verður að vera pörfekt, númeraplatan mín er “ástfanginn”
er ánægður með lífið, þótt ég væri kærður fyrir nokkrar árásir
ég fm hnakki? pfff, ég er samt alltaf bara á rúntinum
alltaf í snúningum, með gleraugu til að halda kúlinu


comment væru vel þegin