ókei ég fór ferskur inní reykjavíkina til að næla mér í eintak af disknum hans Gun-J´s, Merking orðins.

ég byrjaði ferðina á því að kíkja í exodus og spyrjast fyrir en neeei hann var ekki til þar og konan sem á búðina hafði ekki heyrt á þennan disk minnst (tékkaði á huga þegar ég kom heim og þá var hann ekkert seldur þar), my bad.

Ókei svo lá leiðin beint í Brim á laugaveginum oooog þar var hann uppseldur, ég bað starfsfólkið auðvitað um að hringja uppí Brim í kringlu og gá hvort diskurinn væri til þar og var hann uppseldur þar líka.

Afgreiðslumaðurinn í Brim á laugavegi sagði mér svo að einhver gaur (líklegast Gun-J eða vinur hans) hafi bara komið með nokkur eintök á báða staðin og ekki skilið eftir neitt símanúmer eða neitt.

Og ég hafði og hef ekki hugmynd um hvar þruman er, (nálægt hlemm heyrði ég einhverstaðar, en var ekkert á því að fara enn eina fýluferðina þangað) svo ég fór heim.

Spurningin er einfaldlega sú að ef diskurinn er uppseldur í Þrumunni (hringi bara þangað á morgun og gái) er þá enginn staður sem ég gæti farið á til að fá eintak af þessum disk?
<br><br>_____________________________________________________

Er hægt að taka mark á nokkrum manni með undirskrift?