<i>Vicious Battle Raps</i> með <i>DJ Format Feat. Abdominal</i> er lag sem ég verð að mæla mað að allir sem hafa ekki heyrt heyri. Það er í svona tilfellum þar sem jafnvel hinn metings-rímu-fóbíski ég fyrirgef fullkomlega að rappa um alls ekki neitt. Enda tekur Abdominal sjálfan sig ekki alvarlega. Takturinn er nauðaeinfaldur og rappið í raun eitt 3 mín. vers. Flowið er alveg með ólíkindum og mjög fjölbreytt. Ríman er bráðfyndin og samheldin út í gegn.

Ég fæ fiðring í magann og flissa eins og skólastelpa þegar ég heyri þetta. En þið?