ég skoða dimmu draumana , reyni að skilja svefn frá veruleika /
martraðir dynja fokk hata það , drekk mig i svefn til að sofna /
sofna i 2 tíma vakna i svitanum , einn i einmanaleikanum /
vantar einhvern til að halda utan um segja frá vandarmálunum /
líða vel í lífinu , stingandi augu stara á mig í draumunum /
gríp í sængina kveiki ljósið , adrenalín flæðið líkaminn skjálfandi /
dreymandi er ég vakandi , tala við margs konar lækna gefa mer slakandi /
sofna sæmirlega næstu nætur , tel mig vera vaknaðan þegar ég fer á fætur /
sekk inn í rúmið úr mér blæður , loka augunum hræddur opna þau æstur /
dey ég næstur hugsa ég , er þetta drauma heimurinn sem læknar lofuðu mér ? /
draumurinn sker djúpt í skel , svefn frá vöku vöku frá svefni lífið er draumarnir /
sama nóttinn ávalt martraðir , læknar vita ekki neitt en skrifa upp á lyfseðil /