Eitt vers og viðlag sem ég ætla að taka upp, endilega kommentið… á eftir að gera seinna vers og fínpússa og allt það.

Ég byrja að kyrja, yrkja, spitta snilldinni/
Þykir mér mikivægt að klára klifrið á tindinn fyrst/
Svo viltu stíga upp gegn mér, og mínum rímum yndisfríðum?/
Með öðrum orðum, viltu týna lífi þínu vitfyrringur/
Ég hata þig, með hverjum degi verðurðu slappari/
Og bitrari, því þú munt aldrei fá að stunda samfarir/
Þú skalt vanda þig næst, áður en þú heldur að þú sért hart-flæðandi/
Að hlusta á þínar eyrnapyntingar, er ekki mannsæmandi/
Mun stinga-þig-ótt, og á minn rýting-fer-blóð/
Ef maður færi í fangelsi fyrir lélegt rapp fengirðu lífstíðardóm/
Ég er betri, ekki það að ég sé neitt egó/
Mun hlæja meira að þér en Kevin Eubanks hlær að Jay Leno/
Þú ert haldinn skinvillum, ef þú sérð mig lélegan á sviðinu/
Siðblindur, eða einfaldlega vitfyrrtur/
Þú kemur með lélegt flæði væni, þykir leitt að segja það/
En ég gef þér tækifæri, get þér leyft að heyra það/
Hlustaðu á eigin lög, og þú heyrir það á stundinni/
Svo heimski hundur mundu, ekki opna munninn þinn/
Svo ég mun ekki, vera hissa ef að þú verður uppgefinn/
Langar að vera underground, ert það ekki frekar en flugdreki/
Sigra þig píka, rímur þínar eru langdregnari en biblía/
Þeir einu sem fíla þig eru örugglega hópur hirðfífla/
Ég skal drepa þig, þú færð þá kannski að ríða-í-víti/
Ef þú vilt lifa af, þá skaltu flýja Ísland-í-flýti…

Chorus 2x:
Ég kem með óðan kúk, flowa nú, að vinna mig, á það stólar þú/
En ég sigra þig með rímum sem eru ekki ódýrar frekar en Nóatún/
Svo gefstu upp, drepstu nú, því ég mun sigra kjáni/
Hefur ekki gott af battl frekar en offitusjúklingur af skyndibitaáti/
<br><br>Ef þú átt eitthvað vantalað við mig….slepptu því að segja það.
Ef þú átt eitthvað vantalað við mig….slepptu því að segja það.