jæja vinur minn, mannstu þegar ég byrjaði að yrkja shit
hvað allt var erfitt, þurfti að vanda skrefin og svo skilja rím
hver vika leið, en ég náðaldrei að klára heilan texta
rímurnar minntu á hóp veikra hlekkja en ég vildi reyna þetta
myndhverfingar snerta engann gömlu textanna já bara gamalt rusl
ég rappaði bara rugl, vissi ekki skít hvað ég ætti að rappa um
en núna er ég vaknaður, fæ gull og græna skóga fyrir rappið mitt
mig miðaði lítið áfram en lærðað flowa og kyrja atkvæðin
gerður að atlægi og það var nærri komið að því að leggja micinn niður
ég hættum tíma en þá æstist piltur og sagði: “þetter æfing vinur”
búinn að semja og semja, grenja og kveljast en ég verðað vanda mig
þetta er að, verða betra og betra og fer aðeins batnandi
en vegna þess að ég hætti ekki, fékk ég tækifæri og ætla taka það
börnin þagna, var örugg blanda, ég var staddur í hópi rappara
Helgi, Addi, Halli, Jói og ég byrjuðum bandið
síðan bættust fleiri inn, þeir Gunni, Diablo og Dabbi
komið í fínan hóp sem var snilld og maður varð að halda áfram
meðað gera plötur, skemmtá djömmum og bara rappa ákaft
þetta var góður tími en einhvern tíman endar allt
ég elska rapp en núna vinur, *snökt* ætla ég að kveðja það


komment væru vel þegin og ég vill minna á það að <b>ég er ekki að hætta</b> þetta á að vera einsog ég sé að tala við vin minn í framtíðinni….