Jó.

Ágengir smádrengir á kreiki, á reiki
með áfengi, finna áreiti verða bálreiðir
tiplandi á tábergi, ráðast svo á næsta mann
æstan samt, glæstan mann, glætan mar
að þeir sleppi, ég ætla strax, kæfa hann
sækja þann, næsta þar, hæfa hann, græta hann
brjóta hans bjórglas-strax, og báða fótanna
óðara, fljótara segji ég ekki fokkí góðan mann
skulið prófa það, okei þið megið fara nú á ljóshraða
nei bara að djóka mar, tek um skammbyssu og mun skjóta hann
heimsku, gleymsku beyglur,núna er ég reiður
þið eruð bleyður, beint upp bara feitt rugl
að ráðast á sjálfan já Rattó sem nálgast brátt
nítján en nú bra átján ár, fer downtown þá
með seinasta, heimskasta púkan sem reif kjaft þar
mun neyða hann, til að drekka eitrað vatn
heimska barn, þú hefðir frekar átt að breytast mar
áður en þér datt í hug að ráðast á þennan reiða mann

Bra… sona leika mér með rímið.