Fingurnir hreyfast hratt einsog ég sé að spila á píanó.
Þegar ég ýti sem fastast á tölvutakkana
í takkt við takktana sem ég blasta í mónó.
Útum mínum hátalara því hinn sprakk um daginn.
Djöfulsins drasl einsog er ALLTAF inni hjá mér.
Því það eina sem é geri er að vera lúinn og slappa af.
Gæi sem á draslmetið og var aldrei tilbúinn í slaginn.
Hver nennir svosem taka til? Fokk það.
Efast um að ég það nokkurntímann geti,
hef annað að gera meðan ég er vakandi.
Mútta vill kannski ekki sjá það!
né skítuga skokka þegar hún opnar inn í ruslaheiminn minn
því hún er oftast grimm á svipinn og sakar mig um leti
með illu augnaráði en ekki orðum, getur verið að hún hatar mig?
En é segi ávallt! “É sé til hvort é geri´ða morgun!
Morgun eða hinn…” rek við og skilana eftir gapandi í gættinni.
Ætlaði að sleppa annnari bombu en hætti við,
vildi ekki að hún myndi pirrast meir og byrja skamma mig!
En hey, ég er ekkert vondur, slaka bara á í mínum fataborgum.
-það er hrúa hér, hrúa þar, SHIT það eru hrúur allstaðar.
En hvað með það, er e-ð að hrúuhringtorgum?
Eða er mar klikk vegna þess að mar fílar smá lykt?

Ekkert meistaraverk enda er ég nýliði hér!
Það væri vel þegið að fá annarra manna álit.