Ég gekk framhjá Grettisgötu 64 í gær þar sem graffitisýningin verður á morgun (og alla helgina) og náði að gægjast milli dagblaðanna sem voru fyrir rúðunni… djöfulsins magn af myndum er þarna!!! þetta verður gaman að skoða… enginn hiphop haus skal láta þetta fram hjá sér fara. Vonandi verður þetta eitthvað til þess að setja smá líf í graffsenunna hér á landi.