svo ef þú vilt sjá mig, kálandi emmsís einsog Intact og strákarnir/
þá skaltu nálgast mig og verða fyrir áfalli/
því það gildir ekki að rífa kjaft ef þú vilt endast hérna/
þú ert bara of fríkin wakk til þess að semja texta/
ætlaru að leika á mig, mér sýnist það vera bara hættuspil/
því það eru meiri líkur á að ég hrósi sigri en að tapa ærunni/
með blygðunarleysi og textum fæli ég alla svikula snáka burt/
svo skáldaðu! enn einn upploginn sigurinn , blámaður/
Þeir fremstu af þeim fremstu, þeir bestu af þeim bestu/
við spítum gullmolum en þú endar bara í klessu/
Brisk emmsé, ég hef jarðað alveg heilan haug af snillingum/
þú gætir ekki verið í banastuði þó þú værir í dauðaslitrunum/
Ég kem illgjarn einsog úlfur svo feldu þig í fantasíuskógi/
droppa línu? ég læt þig droppa átta lítr´af blóði/
og þótt þú eigir það ekki til? þá bara bæ bæ/
þú getur ekkert í okkur frekar en britney spears í mic fight/
<br><br>_____________________________________________________

Er hægt að taka mark á nokkrum manni með undirskrift?