Hvaða fífl er það sem skapar tískuna/
sem á að fylgja þessum nútíma/
í gegnum sjálfsímyndina/
en fittar varla nema helming almúgans/
en allir hinir verða sætta sig við minni hluta kjötbitans/
þú fylkir flokka meðal vélmenna/
en skilur samt ekki ástæðuna/
fyrir þessum herskara/
sem marserar niður þetta þjóðfélag/
því þeir sem fylgja tískunni/
tapa ósjálfráðu sjálfstæði/
eins og hvers manns brjálæði/
nei sumu fólki er ekki viðbjargandi/
það fylgir engu nema hópnum/
eins og naut í leit að vatnsbólum/
því flíkin er þvílík lífsnauðsyn fyrir tjokkóa/
eins og að taka snuða af krakka/
við að kveikja í retro og vera moda/

væri heimurinn betur settur/
ef enginn mismunur væri á manneskjum/
væri heimurinn betur settur/
ef enginn hefði kynni af fordómum/


<br><br><font color=“gray”><b>#16</b></font
#16